mánudagur, 23. júní 2008

Ræræræ

Nú hef ég svolítið velt einu fyrir mér.
Það er alkunna að morgunverður er mikilvægasta máltíð dagsins. Það er mun hollara að borða morgunmat heldur en að sleppa því, og það skiptir miklu máli hvað það er sem á heiðurinn að því að vera morgunmatur.
Ég hinsvegar er þannig gerð að ef ég borða eitthvað á morgnanna þegar ég vakna, þá verður mér svakalega illt í maganum. Þetta á þó sérstaklega við ef ég fæ mér morgunkorn með mjólk, jógúrt eða þesslags - þá verður mér hálf óglatt út hálfan daginn, eða til svona 2-4 á daginn.
Ég veit ekki hvað líkami minn er að reyna að segja mér, en ég er nokkuð viss um að það er ekki það að morgunmatur sé mikilvægasta máltíð dagsins.
Stundum sleppur að borða epli, en oft næ ég ekki að klára það ef ég finn að magaverkur er á leiðinni.
Hinsvegar ef ég vakna t.d. um 8 leitið, þá er ég tilbúin að fara að borða um hálf 10 - 10 leitið... er þá gjarnan orðin mjög svöng og þá skiptir engu hvað það er sem ég læt ofan í mig.

Þótt að allir næringarfræðingar segi að maður verði að borða morgunmat - það sé hollast, getur þá verið að það sé kannski ekki jafn hollt fyrir alla? Erum við kannski eitthvað ólík hvað þetta varðar?
Bara smá hugleiðing.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Alveg er ég sammála þér! Morgunmatur hjá mér er yfirleitt bara vatnsglas ("stundum" kók reyndar...) og kannski get ég maulað eitthvað smá kex. Ég er sjaldnast orðin svöng fyrr en rétt undir hádegið, stundum seinna - það fer eftir því hvað ég borða mikið í kvöldmat daginn áður! :)