Jæja. Ég hef enga afsökun lengur, þar sem ég er búin í prófum.
Ég ætla að birta myndir úr fiskabúrinu mínu, og ég ætla að byrja á myndum af aðal krúttinu: Humrinum Vladimir Fuckov.
Hann er mikill prílari og finnst gaman að standa uppi á einhverju háu og sýna sig.
Hann er samt alveg svakalegur bröltari og tekst oft að festa sig í undarlegustu stellingum.
Honum kemur alveg merkilega vel saman við alla fiskana og er hinn mesti ljúflingur. Hann hefur ekki svo við vitum klipið í neinn og leyfir þeim oft að lúlla í kókoshnetunni sinni.
Hann er algjört krútt!
mánudagur, 15. desember 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Ohw... Sætur humar. :D Virðist ekki vera mjög stór, hvað verður hann stór annars?
Hann er svona 11 cm.
Er ekki alveg viss hve stór hann verður.
Hann er megakrútt! :D Enda er hann nafni aðalkrúttsins. ;)
Skrifa ummæli